Verðið á hráolíu fór yfir hundrað bandaríkjadali á tunnuna í dag. Það hefur ekki gerst í fjögur ár en ástæðan er ótti um að stríðsátökin í Mið-Austurlöndum dragist á langinn. West Texas Intermediate kostar rúma 109 dali tunnan og Brent-Norðursjávarolía rúmlega 110. Olíuverð hefur þó ekki enn náð metinu, það sem af er öldinni, sem slegið var sumarið 2008 þegar tunnan af Brent-Norðursjávarolíu og West Texas fór yfir 147 dali dali tunnan eftir að hafa rofið hundrað dala múrinn í upphafi ársins. Verðsveiflur þess árs mátti rekja til fallandi hlutabréfaverðs í Bandaríkjunum, mikillar olíueftirspurnar Kínverja og óróa í OPEC-ríkjunum, Íran og Nígeríu. Fyrir árslok 2008 var olíuverðið komið niður í 36 dali á tunnuna eftir efnahagshrunið um haustið. Hráolíuverð rauk upp í 127 dali á tunnuna í mars