Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Býr í tjaldi til að borga af húsnæðisláninu

Norðmaðurinn Jonatan Mæhlum sá sig tilneyddann til að búa í tjaldi eftir að afborganir af nýrri íbúð urðu honum um megn.Húsnæðiskostnaður í Osló hefur nær tvöfaldast á fimm árum.Mæhlum keypti sér íbúð í Osló fyrir tveimur árum síðan. Þegar afborganirnar fóru að verða yfirþyrmandi ákvað hann að leigja út íbúðina sína og tjalda í skóginum í staðinn.Hann hefur nú búið í tjaldinu í níu mánuði.„Ef ég held áfram að safna með sama hætti og held áfram að leigja held ég að ég geti verið búin að borga niður húsnæðislánið eftir tvö ár. Þannig að ég stefni að því og sé til hvort mér takist það,“ segir Mæhlum.
Býr í tjaldi til að borga af húsnæðisláninu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta