Norsk lögregluyfirvöld rannsaka uppruna myndskeiðs sem birtist á Google kortasíðu bandaríska sendiráðsins í Ósló um svipað leyti og sprengingin varð þar liðna nótt. Það sýnir Ali Khamenei, æðstaklerk Írans sem drepinn var í loftárásum Bandaríkjamanna og Ísraela fyrir rúmri viku. Þetta virðist fyrsta myndskeiðið frá viðkomandi notanda og því fylgja skilaboðin „Allah er mikill, við erum sigursælir,“ á persnesku. Frode Larsen, sem fer fyrir rannsókninni, segir við NRK enn óljóst hvort myndskeiðið tengist sprengingunni á nokkurn hátt. Google upplýsti klukkan níu í kvöld að norskum tíma að myndskeiðinu hefði verið hlaðið upp tuttugu tímum fyrr. Lögregla hefur tryggt sér upptökur sem sýna sprenginguna og rætt við vitni í dag sem greina frá mannaferðum sem þykja áhugaverðar.