Mojtaba Khamenei er nýr æðstiklerkur Írana. Þetta tilkynnti íranska sérfræðingaráðið rétt í þessu.Hann er næstelsti sonur Ayatollah Ali Khamenei, æðstaklerksins sem drepinn var í loftárásum Ísraela og Bandaríkjamanna 28. febrúar. Mojtaba Khamenei hefur ekki gegnt opinberu embætti áður.Í langri yfirlýsingu sagði ráðið að „eftir vandlegar og ítarlegar athuganir ... á aukafundi dagsins í dag, er Ayatollah Seyyed Mojtaba Hosseini Khamenei (megi Allah vernda hann) skipaður og kynntur sem þriðji leiðtogi hins heilaga kerfis íslamska lýðveldisins Írans, á grundvelli afgerandi atkvæðagreiðslu hinna virtu fulltrúa sérfræðingaráðsins.“Spáð hafði verið um að Mojat Khamenei yrði fyrir valinu.Aðrir sem komu til greina í æðstu stöðuna voru Alireza Arafi, einn af þremur meðlimum bráðabirgðaráðsins sem st