Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sjö bandarískir hermenn fallnir

Trump tekur á móti föllnum hermönnum.AP / Julia Demaree NikhinsonSjö bandarískir hermenn hafa týnt lífi síðan Bandaríkin og Ísrael gerðu innrás í Íran þann 28. febrúar.Bandaríkjaher tilkynnti fyrir skömmu að sjöundi hermaðurinn hefði látist í gær af sárum sem hann hlaut í árás Írana í Sádi-Arabíu.Hinir sex bandarísku hermennirnir sem hafa fallið voru allir í Kúveit. Donald Trump Bandaríkjaforseti tók á móti líkum þeirra á Dover-herstöðinni í Delaware í gær.Frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu umfangsmiklar loftárásir sínar á Íran hafa Íranar brugðist við með öldu dróna- og eldflaugaárása á Ísrael og aðrar þjóðir í Mið-Austurlöndum þar sem bandarískir hermenn eru staðsettir.
Sjö bandarískir hermenn fallnir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta