Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Átta létu lífið í hvirfilbyljum í miðríkjum Bandaríkjanna

Í það minnsta átta hafa týnt lífi og yfir tugur manns hafa slasast í hvirfilbyljum í Michigan og Oklahoma í Bandaríkjunum.Fjórir hafa látið lífið í suðurhluta Michigan-fylkis, að sögn yfirvalda þar, þar á meðal 12 ára drengur. Þá létu fjórir lífið í Oklahoma-fylki.Hvirfilbyljir hafa gengið yfir miðríki Bandaríkjanna síðustu daga og náði óveðrið hápunkti á föstudaginn. Í óveðrinu rifnuðu tré upp með rótum og féllu á vegi og byggingar, rafmagnslínur slitnuðu, byggingar skemmdust og þök fuku af húsum. Tilkynnt var um yfir 500 manns sem voru án rafmagns.Myndskeið af hvirfilbyljunum má sjá hér að neðan.Hvirfilbyljir gengu yfir miðríki Bandaríkjanna um helgina. Átta létu lífið vegna óveðursins, þar á meðal 12 ára drengur.Hvirfilbyljir gengu yfir miðríki Bandaríkjanna um helgina. Átta létu lífið
Átta létu lífið í hvirfilbyljum í miðríkjum Bandaríkjanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta