Pálmi Gunnarsson heldur upp á tvo fæðingardaga og sá seinni er í dag, en fyrir sléttu þrjátíu og einu ári sagði „stuðboltinn Bakkus“ honum upp. Hann er þakklátur fyrir hvern einasta dag og trúir því að hann væri ekki að óska sér og sínum til hamingju með daginn ef hann hefði haldið áfram að þjónusta púkann.