Dagný Aradóttir Pind, lögfræðingur BSRB, segir stjórnvöld og fyrirtæki geta gert betur til að tryggja öryggi þolenda í ofbeldissamböndum. Ofbeldi í nánum samböndum hafi margvísleg áhrif á þolendur og það geti skipt sköpum fyrir þau að fá til dæmis launað leyfi, vernd frá uppsögn eða aðstoð við að hreinsa síma.