Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lögreglan varar við vasaþjófnaði í Miðborg Reykjavíkur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við aukinni tíðni vasaþjófnaðar í miðborg Reykjavíkur. Í tilkynningu lögreglu segir að mikill fjöldi tilkynninga þess efnis hafi borist undanfarna daga, þá sérstaklega við Hallgrímskirkju, Skólavörðustíg og Laugaveg.Lögregla biður ferðamenn og aðra borgara að hafa augun opin, hafa varann á og tilkynna um grunsamlega hegðun við þessa staði. SPRAUTAÐI Á LÖGREGLU ÚR SLÖKKVITÆKI Lögreglan sinnti einnig útkalli vegna öskra og láta sem bárust úr íbúð í Reykjavík. Þá sprautaði íbúinn úr slökkvitæki þegar lögregla reyndi að nálgast hann í gegnum sameign hússins og henti því í kjölfarið í átt að lögreglu.Maðurinn var handtekinn og verður vistaður í klefa þar til hægt verður að taka framburð af honum, en í íbúðinni fundust ummerki um áfengis- og vímuefnaneyslu
Lögreglan varar við vasaþjófnaði í Miðborg Reykjavíkur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta