Yfirvöld í norðanverðri Ástralíu hafa hrint af stað rýmingu rúmlega þúsund manna byggðar í kjölfar mikilla flóða um helgina. Tjónið er töluvert, nær öll heimili á áhrifasvæðinu eru án rafmagns og lögreglustjórinn, Shaun Gill, brýndi fyrir fólki að vara sig á krókódílum.„Það eru krókódílar gjörsamlega alls staðar,“ sagði Gill á blaðamannafundi. „Ekki fara ofan í vatnið.“ Yfirvöld hafa flutt íbúa á afskekktum svæðum á brott í þyrlum og flugvélum.Norðursvæði Ástralíu er fámennast allra fylkja landsins og víðast hvar fremur dreifbýlt. Þar búa rúmlega 244.000 manns og fjöldi krókódíla er rúmlega 100.000.