Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Telja nauðsynlegt að hefja skimun á heyrn grunnskólabarna á ný

Nauðsynlegt er að hefja skimun á heyrn grunnskólabarna svo hægt sé að grípa fyrr inn í og mögulega minnka aðra biðlista í heilbrigðiskerfinu. Þetta segja Telma Sigtryggsdóttir, formaður heilbrigðishóps Örykjabandalags Íslands (ÖBÍ) og Heyrnarhjálpar, og Kristján Sverrisson, forstjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands (HTÍ).ÖBÍ réttindasamtök færðu HTÍ nýjan skimunarmæli sem nýtist við heyrnarskimun skólabarna í tilefni af degi heyrnar sem var á þriðjudaginn.„Með því viljum við hvetja yfirvöld til að hefja skimun á heyrn grunnskólabarna á ný,“ segir Telma. Með þessu sé hægt að grípa börn fyrr sem mælast með slæma heyrn og senda í frekari og betri mælingu.„Og þá jafnvel minnka biðlistar annars staðar,“ segir Telma sem tekur fram að grunur sé um að börn með slæma heyrn séu oft á biðlistum f
Telja nauðsynlegt að hefja skimun á heyrn grunnskólabarna á ný

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta