António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að tími sé kominn til þess að efla jafnrétti sem sé einn stærsti drifkraftur sjálbærrar þróunar og friðar.Þetta segir hann í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna í dag. Hvað er alþjóðlegur baráttudagur kvenna? Alþjóðlegur baráttudagur kenna er haldinn hátíðlegur 8. mars ár hvert. Deginum er ætlað að fagna framförum í jafnréttismálum, vekja athygli á kynbundnu ofbeldi og berjast fyrir auknum réttindum kvenna um allan heim.Í yfirlýsingu greinir Guterres frá átta aðgerðum, innblásnum af eigin reynslu og starfi Sameinuðu þjóðanna, sem hann telur nauðsynlegar til þess að efla réttindi kvenna og ná markvissum árangri í jafnréttisbaráttunni.Aðgerðirnar sem hann leggur til eru af ólíkum toga en allar eiga þær sammerkt að snúa að auk