Fjórir voru fluttir með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Vesturlands eftir árekstur á Vesturlandsvegi. Tveir bílar rákust saman við Laxárbakka, að sögn Lögreglunnar á Vesturlandi.Upplýsingar um líðan fólksins liggja ekki fyrir en allir voru með meðvitund þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang, að sögn Ásmundar Kristins Ásmundssonar yfirlögregluþjóns.Vegurinn er lokaður en lögregla gerir ráð fyrir því að hann verði opnaður um 14:30. Nánar um lokunina á Umferðin.is