Rannsókn er hafin á líkamsárás sem framin var í Hafnarfirði í gærkvöld eða nótt. Enginn hefur verið handtekinn í því máli en tveir ölvaðir menn voru handteknir fyrir líkamsárás þar í bæ og vistaðir í fangageymslu uns rennur af þeim.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir nóttina hafa verið annasama og fyrir utan framangreint var maður handtekinn í Laugardalnum fyrir að hóta gangandi vegfaranda með eggvopni og annar sem mundaði hníf á skemmtistað í miðborginni.Sá beitti lögreglumenn ofbeldi eftir að á lögreglustöðina var komið. Maður var handtekinn fyrir að hafa í hótunum við unglingsstúlkur í úthverfi og tvennt eftir slagsmál í heimahúsi í vesturhluta borgarinnar. Tíu gistu fangageymslur í morgun.Veitingastaður reyndist hafa ráðið erlenda menn í vinnu sem ekki höfðu atvinnuleyfi og lögreglume