Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir rússneska íhluti hafa fundist í braki íranskra árásardróna sem beitt hefur verið gegn Bandaríkjaher og nokkrum Arabaríkjum. Það segir Zelensky að bendi til víðtækrar samvinnu Írana og Rússa.Vísbendingar væru einnig um að leyniþjónustur Rússlands gæfu Írönum upplýsingar sem auðveldaði þeim árásir á bandarískar hersveitir.Með því bergmálar Zelensky The Washington Post sem hafði eftir ónafngreindum heimildarmanni að Rússar veittu Írönum umfangsmiklar upplýsingar. Bandarískir ráðamenn hafa sagt það litlu skipta enda væri herinn við það að tortíma klerkastjórninni.Volodymyr Zelensky kvað augljóst að írönsk og rússnesk stjórnvöld ynnu saman að skipulögðum drápum í Mið-Austurlöndum og Evrópu.Það undirstrikaði þörfina fyrir samhæfðar, alþjóðlegar varnir, ekk