Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hálka víða á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landinu

Víða er hált á höfuðborgarsvæðinu.RÚV / Þorgils JónssonHálka er víða á höfuðborgarsvæðinu að því er segir á vef Vegagerðarinnar. Einnig er hált á Hellisheiði, Þrengslum, Mosfellsheiði, Kjósarskarðsvegi og í Hvalfirði. Hálka og hálkublettir eru á flestum vegum landsins. Dynjandisheiði verður lokuð vegna veðurs fram á mánudag og Siglufjarðarvegur um Almenninga er lokaður vegna snjóflóðs. Ófært er um Öxi og Breiðdalsheiði, snjóþekja á Lyngdalsheiði og Landvegur er lokaður vegna vatnavaxta milli gatnamóta við Ísakot og Þjórsárdalsveg.
Hálka víða á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta