Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hávær sprenging við bandaríska sendiráðið í Ósló

Öflug sprenging kvað við nærri bandaríska sendiráðinu í norsku höfuðborginni Ósló laust fyrir klukkan eitt að staðartíma í nótt. Fjölmennt lögreglulið er við sendiráðið samkvæmt frétt norska ríkisútvarpsins NRK og á í samskiptum við starfsfólkið. Samkvæmt upplýsingum lögreglu virðist engan hafa sakað. Enn skortir upplýsingar um hvað nákvæmlega gerðist og hverjir kunni að eiga hlut að máli. Fréttin verður uppfærð.
Hávær sprenging við bandaríska sendiráðið í Ósló

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta