Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandaríkjaforseti segir Írani bera ábyrgð á mannskæðri árás á stúlknaskóla

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Írani bera ábyrgð á loftárás á stúlknaskóla í borginni Minab um síðustu helgi þar sem 150 nemendur fórust. „Já ég held þetta sé þeim að kenna. Eins og þið vitið eru Íranir afskaplega ónákvæmir með hergögnin sín,“ sagði Donald Trump við fréttafólk um borð í forsetaþotunni. „Þá hreinlega skortir alla nákvæmni,“ sagði Trump. Rannsókn á vegum New York Times bendir til að Bandaríkjaher megi kenna um árásina. Greining sérfræðinga á samfélagsmiðlafærslum, ljósmyndum og myndupptökum renni stoðum undir að skólinn hafi orðið fyrir sprengju á sama tíma Bandaríkjaher gerði árás á bækistöðvar íranska byltingarvarðarins við Hormussund. Það geri einnig gervihnattamyndir, upplýsingar frá herjum Bandaríkjanna og Ísrael auk upplýsinga bandarískra heimildarmanna. Írönsk s
Bandaríkjaforseti segir Írani bera ábyrgð á mannskæðri árás á stúlknaskóla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta