Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bretar heimila Bandaríkjamönnum notkun herstöðva í varnarskyni

Bresk yfirvöld hafa heimilað Bandaríkjunum að nota tvær herstöðvar fyrir sérstakar og einangraðar varnaraðgerðir í stríðinu gegn Íran, eins og það er orðað í tilkynningu breska varnarmálaráðuneytisins.Önnur stöðin er í Gloucester-skíri á Englandi og hin á Chagos-eyjum í Indlandshafi. AFP-fréttaveitan segir tvær bandarískar herflugvélar hafa lent á ensku stöðinni í dag meðan mótmælendur komu saman fyrir utan.Breski forsætisráðherrann Keir Starmer ergði Donald Trump Bandaríkjaforseta þegar hann þvertók fyrir að taka þátt í árásarstríðinu gegn Íran og sá síðarnefndi sagði þann fyrrnefnda augljóslega engan Winston Churchill.Trump afþakkaði í gær að tvö bresk flugmóðurskip yrðu hugsanlega send til Mið-Austurlanda og kallaði Bretland „áður stórkostlegan“ samherja. Breska varnarmálaráðuneytið seg
Bretar heimila Bandaríkjamönnum notkun herstöðva í varnarskyni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta