Alþjóðlega keppnin Barlady fór af stað í gær með pompi og prakt á grísku eyjunni Korfú sem liggur í Jónahafi. Helga Signý Sveinsdóttir fór út fyrir hönd Íslands en hún er reynslumikill barþjónn og er þetta í annað skipti sem hún tekur þátt í keppninni.