Danski matreiðslumaðurinn René Redzepi, eigandi öndvegisveitingahússins Noma í Kaupmannahöfn, hefur verið sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn starfsfólki árum saman.Noma var ein helsta skrautfjöður danskrar matarmenningar, enda heitið stytting á orðunun Nordisk Mad. The New York Times hefur rætt við þrjátíu og fimm fyrrverandi starfsmenn sem greina frá kerfisbundnum líkamlegum refsingum af hálfu Redzepis, einelti og óttastjórnun á árabilinu 2009 til 2017.Sumir segjast hafa verið kýldir í magann með eldhúsáhöldum, jafnvel stungnir, oft fyrir litlar sakir á borð við símanotkun eða minniháttar sóðaskap.Aðrir segjast hafa verið niðurlægðir frammi fyrir vinnufélögum eða verið hótað öllu illu. Einhverjar ávirðinganna hafa áður komið fram og Redzepi viðurkenndi 2015 og 2022 að hafa komið