Tólf voru drepin í árásum Rússa á Úkraínu í nótt. Meira en tugur fólks særðist, börn þar á meðal.Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir Rússa hafa skotið 29 eldflaugum og 480 drónum í árásunum, sem nokkrar beindust að orku- og járnbrautarinnviðum.Yfirvöld í Kharkiv, sem er næststærsta borg Úkraínu, segja eldflaugarárás hafa eyðilagt fimm hæða fjölbýlishús í borginni og drepið tíu manns, þar á meðal 13 ára stúlku og níu ára dreng. Að sögn Zelensky leita björgunarsveitir að fólki í rústunum. GRÍÐARLEG ÁRÁS Á ALMENNA BORGARA Einn lést í Dnipropetrovsk-héraði í austurhluta Úkraínu og þrír særðust í höfuðborginni Kyiv, segja yfirvöld. Í Sumy-héraði, sem liggur að Rússlandi, lést 24 ára maður í bílnum sínum þegar rússneskur dróni hæfði hann, að sögn embættismanna á svæðinu.Zelensky segir