Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Grásleppan umdeild hvort sem er í kvóta eða ekki

Á næsta fiskveiðiári verða grásleppuveiðar aftur byggðar á sóknardögum en ekki kvóta eins og næstu tvö fiskveiðiár á undan. Hart hefur verið deilt um breytingarnar á Alþingi en reglur um grásleppu virðast umdeildar á hvorn veginn sem er.Svona var andrúmsloftið á Alþingi skömmu áður en umdeilt frumvarp um afnám kvótasetningar á grásleppu var samþykkt.Skoðanir sjómanna eru skiptar en þeir virðast þó margir rólegri yfir breytingunum en þingmenn stjórnarandstöðunnar.Í mjög einfölduðu máli snúast lögin um þetta:Fyrir yfirstandandi fiskveiðiár og það síðasta, var ákveðið að takmarka hve mikið hver sjómaður má veiða af grásleppu. Það var gefinn út kvóti.Árin á undan var veiðunum stýrt með sóknardagakerfi, hver sjómaður mátti veiða eins og mikið og hann gat, en aðeins í takmarkaðan fjölda daga á á
Grásleppan umdeild hvort sem er í kvóta eða ekki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta