Rapparinn Balendrah Shah er nýkjörinn forsætisráðherra Nepal. Hann sigraði sitjandi forsætisráðherra , KP Sharma Oli, í þingkosningum sem fram fóru þar í landi í dag.Samkvæmt kjörstjórn í Nepal hlaut Shah, sem er 35 ára gamall, yfir þrefalt fleiri atkvæði en Oli í sínu kjördæmi. Shaw bauð sig fram fyrir flokkinn Rastriya Swatantra Party (RSP).Sigurinn þykir marka tímamót í nepölskum stjórnmálum og endurspegla aukin áhrif yngri kjósenda. Um 800 þúsund greiddu atkvæði í fyrsta sinn í kosningunum. RÍKISSTJÓRNIN FÉLL Í SEPTEMBER Kosningarnar fóru fram í kjölfar umfangsmikilla mótmæla í Nepal í september sem leiddu til þess að ríkisstjórnin féll. Mótmælin brutust út eftir að Oli, forsætisráðherrann fyrrverandi, bannaði samfélagsmiðla og beindust síðar að stjórnmálakerfi landsins og stéttamun