Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ýtt úr vör nýju hernaðarbandalagi sem er ætlað að berjast gegn fíkniefnabrotum og uppræta fíkniefnasamtök í Norður- og Suður-Ameríku. Hann tilkynnti um þetta á ráðstefnu með öðrum Ameríkuríkjum í Flórída.Sautján Ameríkuríki tilheyra bandalaginu, sem kallast Shield of the Americas, eða Skjöldur Ameríku. Kristi Noem, sem þar til nýverið var heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, verður sérstakur erindreki nýja bandalagsins en ekki er ljóst hvað það hlutverk felur í sér.Sautján Ameríkuríki eiga aðild að nýja bandalaginu.AP / Mark Schiefelbein