Íslensk hjón sem voru í fríi í Sádí-Arabíu upplifðu sig ekki í mikilli hættu þegar átök brutust út í Mið-Austurlöndum í síðustu viku.Þau fengu flug til Vínarborgar með aðstoð borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins og vænta þess að komast heim til sín í næstu viku. FEGIN AÐ VERA EKKI Í DOHA Hjónin Úlfur Bragi Einarsson og Katrín Björg Gunnarsdóttir voru stödd í Ríad í Sádí-Arabíu þegar átökin brutust út í Mið-Austurlöndum í síðustu viku. Þau eru búsett í Tókýó í Japan og höfðu ákveðið að fara til Sádí-Arabíu til þess að heimsækja foreldra Úlfs sem eru búsettir þar.„Við vorum þarna í Ríad. Svo byrja að berast fréttir af þessari innrás í Íran og þá byrja bara að falla niður flug og það er verið að aflýsa flugum. Í Ríad urðum ekki vör við neitt nema bara það eiginlega,“ segir Úlfur.„Þannig