Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstrihreyfingin – grænt framboð, gagnrýndi harðlega þróun íslenskra stjórnmála og aukna hægrisveiflu í ræðu sinni á landsfundi flokksins á Selfossi í dag. Hún sagði að flokkarnir á Alþingi kepptust nú við að sýna mesta hörku í ríkisfjármálum, náttúrunýtingu og útlendingamálum.