Kristinn Jón Ólafsson, varaborgarfulltrúi Pírata, leiðir lista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum.Hann tekur við oddvitasætinu af Alexöndru Briem, sem vildi halda áfram. Hún hefur ekki gefið kost á viðtali. Alls voru 230 atkvæði greidd í kosningunni, sem var rafræn.Kristinn er spenntur að leiða flokkinn inn í nýja tíma. Hann segir miklar breytingar í gangi og áskoranir fylgi þeim.„Að hlusta á íbúa er eitt það mikilvægasta sem við gerum, að finna ólíkum röddum farveg. Við Píratar stöndum fyrir nútímaþjónustu, viljum betrumbæta ferla, og það er eitthvað sem við ætlum að halda áfram að gera. Við ætlum að besta borgina og einfalda líf íbúa.“