Fjölskyldan á Rauðbarðaholti 2 í Dalabyggð hóf rekstur nýrrar ullarvinnslu vorið 2025. Rætt var við Ingibjörgu Þórönnu Steinudóttur um starfsemina í þættinum Víðsvegar á Rás 1.Ingibjörg segir að allt hafi þetta byrjað í réttum haustið 2022. Þá tók hún fyrst eftir hversu mikill munur var á lambsull og ærull. > „Þá langaði mig að prjóna mér peysu úr lambsull, sem ég taldi að yrði mun mýkri en lopapeysan sem ég var að prjóna mér heima, akkúrat á þeim tíma.“ Hugmyndin vatt upp á sig og um tveimur og hálfu ári síðar höfðu þau fjárfest í ullarvinnslutækjum og voru byrjuð að spinna band úr ull frá bændum í Dalabyggð.Ingibjörg segir að markmiðin með ullarvinnslunni séu meðal annars að viðhalda litum íslenska sauðfjárkynsins. Þau taka því við litum sem yfirleitt eru metnir verðlausir. > „Þar eru