Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir flokkinn eiga mikið erindi í íslenskum stjórnmálum því vinstri flokkar leiti sífellt meira til hægri. Hún segist hvergi nærri hætt þó að hún hafi ekki gefið kost á sér sem formaður áfram og er bjartsýn á framtíð flokksins.Landsfundur VG stendur um helgina og á morgun verður nýr formaður valinn. Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Hlynur Már Ragnheiðarson hafa sóst eftir því að leiða flokkinn. Guðmundur Ingi Guðbrandsson varaformaður gefur heldur ekki kost á sér í forystu flokksins.Svandís flytur sína síðustu ræðu sem formaður í dag. Hún segir þetta vera mikil kaflaskil í hennar lífi en að hún sé ekki hætt í VG.„Ég held að ég verði partur af öflugri grasrót hreyfingarinnar. Ég held að það sé bara partur af eðlilegri og góðri þróun í hreyfingun