Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtakanna segir samtökin ekki setja sig upp á móti því að þjóðin fái að taka ákvörðun um hvort halda eigi áfram viðræðum um inngöngu í Evrópusambandið.Hins vegar velti hann fyrir sér hvort þetta sé rétti tíminn, þegar óvissa og ólga er í alþjóðamálum. Samtöl við bændur og samtök þeirra í löndum innan ESB sýni óánægju með málefni landbúnaðarins innan sambandsins. EKKI AÐ SJÁ TÆKIFÆRI FYRIR ÍSLENSKAN LANDBÚNAÐ Í ESB „Við höfum ekki komið auga á nein sérstök tækifæri fyrir heildarhagsmuni íslensks landbúnaðar með aðild að ESB,“ segir Trausti.„Það er hins vegar þannig að ef það verður farið í þessa vinnu þá munu Bændasamtökin að sjálfsögðu ekki skorast undan því að taka virkan þátt í því samtali, hvort sem er við stjórnvöld eða almenning í landinu, og uppl