Kerecis á Ísafirði greiðir í haust 40 milljarða króna í skatt vegna sölu á hugverkaréttindum til danska fyrirtækisins Coloplast. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, fór yfir viðskiptin í Kastljósi. Hann segir að þrátt fyrir söluna haldist starfsemin á Íslandi óbreytt og sé jafnvel að styrkjast. Verið sé að byggja nýja framleiðsluaðstöðu á Ísafirði, sem muni leiða til frekari fjölgunar starfa og að fyrirtækið vinni að þróun nýrra lækningavara úr fiskroði. SNÝR STÖÐU RÍKISSJÓÐS VIÐ Athygli vakti að fyrirtækið greiðir skattinn í eingreiðslu í stað þess að dreifa henni yfir allt að sjö ár, eins og er heimilt. Fyrir vikið verður fjárlagagati næsta árs lokað og ríkissjóður rekinn með afgangi. Guðmundur segir ánægjulegt að geta lagt sitt af mörkum en að ákvörðun um eingreiðsluna