Árásir Ísraela og Bandaríkjamanna á Íran og dauði Khameneis æðstaklerks eru ekki sögulok heldur upphaf leiðarinnar fram á við fyrir Írana. Þetta segir írönsk kona sem býr á Íslandi. Hún neyddist til að flýja heimalandið vegna skoðana sinna. Hún vonar að Íranar öðlist frelsi og frið. FJÖLMENNINGARRÍKI MEÐ RÍKA SÖGU Í GEGNUM ÁRÞÚSUNDIN Íran, eða Íslamska lýðveldið Íran, er flennistórt land í Suðvestur-Asíu, í Mið-Austurlöndum. Það er 1.648.195 ferkílómetrar að flatarmáli, um það bil sextán sinnum stærra en Ísland. Íran á landamæri að Aserbaísjan, Armeníu, Túrkmenistan og Kaspíahafi í norðri, Pakistan og Afganistan í austri, Tyrklandi og Írak í vestri og Persaflóa í suðri. Það er eina landið í heiminum sem liggur bæði að Kaspíahafi og Persaflóa og var þekkt undir nafninu Persía á Vesturlön