Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Varað við hvassviðri og hríð víða um land

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna hvassviðris og hríðar víða um landið. Lægð liggur 200 kílómetrum vestur af Bjargtöngum og færist hægt og bítandi til norðvesturs.Viðvaranir eru í gildi fyrir Suðurland, Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir og Norðurland Vestra, Norðurland eystra og Miðhálendið. Þær síðustu falla úr gildi klukkan 16:00 í dag.Búast má við sunnan og suðvestan 15 til 25 metrum á sekúndu, hvassast við fjöll á norðan- og vestanverðu landinu með hviðum upp í 35 metra á sekúndu. Einnig má eiga von á éljagangi á þessum slóðum og segir Veðurstofan frekar varasamt að vera á ferð.Á fjallvegum verður skafrenningur með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum.Dregur úr vindi á morgun. Þá gerir veðurspáin ráð fyrir suðlægri átt, 8 til 15 metrum á sekúndu, og éljum eða sly
Varað við hvassviðri og hríð víða um land

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta