Á alþingi er nú beitt óvenjulegri hörku við meðferð umdeildra mála. Umræður eru stöðvaðar, umsagnir takmarkaðar og gestakomur í þingnefndir bannaðar. Markmiðið er að koma málum í gegnum þingið án þess að sú spenna sem ríkir milli stjórnarflokkanna komi upp á yfirborðið.