Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir handteknir grunaðir um stórfellda líkamsárás

Tveir menn voru handteknir í miðborg Reykjavíkur grunaðir um stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna. Lögreglukonur að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni.RÚVMálið er í rannsókn að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla rannsakar einnig líkamsárás sem gerð var í úthverfi sem sögð er hafa verið minni háttar. Nokkuð eignatjón varð þegar flugeldum var skotið inn um rúðu á hóteli í miðborginni. Fjórir gistu fangageymslur lögreglunnar í morgun.
Tveir handteknir grunaðir um stórfellda líkamsárás

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta