Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Flugumferð úr skorðum á Keflavíkurflugvelli vegna veðurs

Illviðrið sem gengur yfir hefur áhrif á flugsamgöngur á Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt upplýsingum aðalvarðstjóra í flugstjórnarmiðstöð er mjög hvasst og gengur á með sterkum hviðum. Þota Icelandair kemur inn til lendingar á Akureyrarflugvelli fyrir nokkru þegar illviðri sett strik í ferðir um Keflavíkurflugvöll.RÚV / Kristófer Óli BirkissonBrottför Icelandair til Prag sem átti að vera klukkan 7:20 hefur verið frestað til klukkan ellefu og ferðum til Amsterdam, Parísar og Helsinki á áttunda tímanum aflýst. Nokkrar brottfarir á þeim tíma virðast enn á áætlun samkvæmt vef Isavia en mörgum brottförum og áætluðum lendingum hefur verið frestað um nokkra klukkutíma fram eftir morgni. Allt innanlandsflug er samkvæmt áætlun og einnig brottfarir og komur til Akureyrar erlendis frá.
Flugumferð úr skorðum á Keflavíkurflugvelli vegna veðurs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta