Gul viðvörun gengur í gildi fyrir Suðurland og miðhálendið núna klukkan eitt vegna hvassviðris, storms eða roks með éljagangi og lélegu skyggni. Veðurstofan varar við slæmu ferðaveðri á Suðurlandi.Með morgninum, undir klukkan sex, tekur viðvörun gildi fyrir Breiðafjörð, Vestfirði og Norðurland og varir fram eftir degi. Brýnt er að fylgjast með þróun mála hjá Veðurstofunni og á vef Vegagerðarinnar.Á vef Veðurstofunnar segir að víða megi búast við éljum og slæmu skyggni. Akstursskilyrði verða varasöm ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum.Veðurspáin er annars svohljóðandiSuðlæg átt í nótt, víða stinningskaldi, allhvass vindur eða stormur og él eða slydduél. Úrkomulítið norðaustanlands.Allhvass suðvestanvindur, hvassviðri, stormur eða r