Heather Grabbe, sérfræðingur um stækkunarmál ESB, segir að sjávarútvegur yrði líklega stærsta úrlausnarefnið ef Ísland hæfi aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Hún segir stöðu Evrópu gerólíka þeirri sem var uppi árið 2009 þegar Ísland sótti fyrst um aðild.„Ég held að sjávarútvegur yrði erfiðasta úrlausnarefnið,“ segir Grabbe. „Ísland og ESB þyrftu bæði að gefa eitthvað eftir og að sjálfsögðu kæmu hvalveiðar upp, sem er viðkvæmt mál, því ég tel nokkuð víst að ESB geti ekki leyft ríki að halda áfram hvalveiðum eftir inngöngu.“ 95% AF REGLUBÓKINNI VERÐUR EKKI HAGGAÐ Grabbe bætir við að þótt ríki sem sækist eftir aðild þurfi að samþykkja meginreglur Evrópusambandsins sé svigrúm til þess að semja um aðlögun.„95% af reglubók ESB verður ekki hagað því ríkin 27 hafa samþykkt hana. En r