Kristinn Jón Ólafsson fór með sigur af hólmi í prófkjöri Pírata í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Hann tekur við fyrsta sætinu af Alexöndru Briem, sitjandi oddvita, sem sóttist eftir endurkjöri.Alexandra situr í öðru sæti listans, en í því þriðja er Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, annar varaborgarfulltrúi Pírata í borginni.Alls voru 230 atkvæði greidd í kosningunni og voru frambjóðendur tíu talsins. Þetta kemur fram á kosningasíðu flokksins.Í fréttatilkynningu Pírata segir að flokkurinn muni kynna fullskipaðan framboðslista til borgarstjórnarkosninga á næstu dögum. Listi Pírata í Reykjavík 1. Kristinn Jón Ólafsson 2. Alexandra Briem 3. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns 4. Unnar Þór Sæmundsson 5. Olga Margrét Cilia 6. Hans Alexander Margrétarson Hansen 7. Tinna Helga