Áfengistengdum innlögnum á Landspítala hefur fjölgað töluvert síðustu áratugi og flestir leggjast inn með geð- og atferlisraskanir eða áfengistengda lifrar- eða brissjúkdóma. Innlagnir árið 2005 voru 101 en árið 2022 voru þær 250. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Læknablaðinu. Innlögnum fjölgaði um 88% á þessu tímabili.„Við leiðréttum þennan fjölda fyrir fólksfjölgun og komumst að því að aukningin er ekki bara vegna þess að Íslendingum hefur fjölgað, heldur er hún raunveruleg. Fjöldinn er þá í rauninni frá 34 innlögnum á hverja 100.000 íbúa upp í 64 innlagnir á 100.000 íbúa í lok tímabilsins,“ segir Hildur Jónsdóttir læknir. Hún er einn höfunda rannsóknarinnar.Þeir telja að nái hugmyndir um aukið aðgengi almennings að áfengi, svo sem með því að áfengi verði selt í matvöruverslunum