Rekstur Orkuveitunnar skilaði 11,5 milljarða króna hagnaði árið 2025.Fram kemur í tilkynningu Orkuveitunnar að sú niðurstaða sé rúmlega tveimur milljörðum betri en árið 2024 þrátt fyrir áfall hjá stórum viðskiptavini og samdrátt í tekjum hitaveitunnar.Þar segir jafnframt að rekstrartekjur hafi aukist um 2,5% milli ára, en rekstrargjöld um 1,7%. Fjárfestingar ársins 2025 námu samtals 33,4 milljörðum króna en voru 30,9 milljarðar 2024. EINN MILLJARÐUR BUNDINN SKILYRÐUM Stjórn Orkuveitunnar leggur til að greiddur verði arður vegna ársins að fjárhæð 4,5 milljarða króna. Þar af verði einn milljarður þó bundinn skilyrðum um hagfellda framvindu óvissuþátta á yfirstandandi ári.Ársreikningur samstæðu Orkuveitunnar var samþykktur af stjórn í dag. Auk móðurfélagsins tilheyra Veitur, Orka náttúrunn