Truflanir eru á rafmagni og hitaveitu á höfuðborgarsvæðinu vegna eldinga. Samkvæmt upplýsingum frá Veitum hafa eldingar bein áhrif á dreifingu á heitu vatni auk rafmagnstruflana.Eldingar hafa einnig valdið rafmagnsleysi í Þorlákshöfn og eru starfsmenn Landsnets og RARIK að vinna að því að finna bilun. Ekki er vitað hvenær rafmagn kemst aftur á.Veðurstofan varar við þrumuveðri með tíðum eldingum á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu í dag. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og forðast vatn, hæðir í landslagi og berangur.