Atvinnuleysi í Bandaríkjunum jókst óvænt í febrúar. Samkvæmt upplýsingum frá vinnumálaráðuneytinu fækkaði störfum um 92 þúsund í síðasta mánuði og mælist atvinnuleysi nú 4,4 prósent.Störfum fækkaði í flestum atvinnugreinum og voru heilbrigðisstarfsmenn og ríkisstarfsmenn meðal þeirra sem misstu vinnuna vegna samdráttarins. Alríkisstörfum fækkaði um tíu þúsund í síðasta mánuði, en frá október 2024 hefur alríkisstarfsmönnum fækkað um 330 þúsund eða 11%.Þróunin á sér stað þvert á spár sérfræðinga sem búist höfðu við stöðugum vexti á vinnumarkaði í febrúar.„Hvaða stöðugleiki?“ er haft eftir Samuel Tombs, yfirhagfræðingi hjá Pantheon Macroeconomics, í samtali við fjölmiðla. „Hugmyndin um að vinnumarkaðurinn hafi reist sig við fellur um sjálfa sig með þessari skýrslu.“Að sögn sérfræðinga gætu tö