Líklegt þykir að Bandaríkjaher beri ábyrgð á loftárás á íranskan stúlknaskóla um helgina, samkvæmt rannsakendum á vegum hersins. 150 nemendur létust í árásinni samkvæmt yfirvöldum í Íran.Reuters hefur þetta eftir tveimur bandarískum embættismönnum sem vildu ekki koma fram undir nafni. Rannsakendurnir hafa ekki lokið rannsókninni. Reuters tókst ekki að fá frekari upplýsingar um rannsóknina, eins og hvaða sönnunargögn hafi leitt til þess að rannsakendurnir telji þetta, hvaða hergögn voru notuð í árásinni, hver bar ábyrgð á henni og af hverju Bandaríkin réðust á skólann.Stúlknaskólinn er í Minab í suðurhluta Írans. Hann varð fyrir loftárás á laugardag, fyrsta dag árása Ísraels og Bandaríkjanna á Íran. Ali Bahreini, sendiherra Írans hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf í Sviss, sagði 150 nemendur haf