Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rafmagnslaust í Þorlákshöfn eftir að eldingu laust niður

Rafmagnslaust er í Þorlákshöfn og bendir allt til þess að eldingu hafi lostið niður og valdið rafmagnsleysinu. Mannskapur frá Landsneti og RARIK vinnur að því að kanna aðstæður og finna bilunina sem veldur rafmagnsleysinu. Upphaflega var tilkynnt um rafmagnsleysið af Landsneti en eftir skoðun fannst bilun í kerfi RARIK sem hafi framlengt rafmagnsleysi. Því hafi mannskapur frá RARIK einnig verið kallaður til. Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets segir ómögulegt að segja til um hvenær rafmagn kemst aftur á. Unnið sé að því að greina vandann. VARAÐ VIÐ ELDINGAVEÐRI Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun vegna þrumuveðurs með tíðum eldingum á Suðurlandi. Hún hefur nú þegar tekið gildi. Bent er á að forðast vatn, hæðir í landslagi og berangur. Fólk er hvatt til að sý
Rafmagnslaust í Þorlákshöfn eftir að eldingu laust niður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta