Tekist var á í máli Margrétar Friðriksdóttur í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Helsta ágreiningsefni dagsins var hvort leiða ætti Barböru Björnsdóttur héraðsdómara og Símon Sigvaldason landsréttardómara aftur fyrir dóminn sem vitni. Þá vildi Hilmar Garðar Þorsteinsson, verjandi Margrétar, einnig leiða Sigríði Hjaltested héraðsdómara fyrir réttinn.Margrét er sökuð um meiðyrði í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara.Málið hafði áður verið flutt í Héraðsdómi í janúar en dómsuppkvaðningu var frestað ítrekað.Hilmar krafðist þess að málið yrði endurflutt á þeim forsendum að of langt væri á milli aðalmeðferðar og dómsuppkvaðningar. Það gerði hann á þeim forsendum að ef meira en fjórar vikur líða frá aðalmeðferð máls og dómsuppkvaðningu sé hægt að fara fram á að mál verði endurflutt.Jónas Jóhannsson