ALDOUS HARDING – ONE STOP Lagið One Stop með kiwi-krúttinu Hönnu Harding, eða bara Aldous Harding, frá Christchurch á Nýja-Sjálandi, er lag vikunnar hjá Pitchfork Media. Hún er söm við sig og spilar einhverja stórundarlega listapoppsblöndu af Kate Bush og ýmsu öðru en lagið er gott og það skiptir mestu. JOSÉ GONZÁLEZ – A PERFECT STORM Sænsk-argentínski plokkarinn José González heldur sínu striki á gítarnum í nýjasta lagi sínu, A Perfect Storm, sem sýnir allar hans bestu hliðar. Lagið er af væntanlegri plötu hans, Against the Dying of the Light, sem er væntanleg í lok mánaðarins. MITSKI – IF I LEAVE Það hefur áður verið minnst á það á þessum vettvangi að Mitski sé aftur búinn að finna sinn innri rokkara. If I Leave er ágætis dæmi um það. Lagið er á nýjustu plötu hennar, Nothing is ab