Gul viðvörun er í gildi vegna eldinga á Suðurlandi. Veðurfræðingur segir eldingarnar að mestu hafa verið bundnar við syðsta hluta landsins fyrir hádegi en veðrið sé að færast vestar. Fréttastofa hefur frétt af eldingum í Mosfellsbæ síðdegis í dag og þá var einnig greint frá rafmagnsleysi í Þorlákshöfn.