Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

UNICEF: minnst 180 börn drepin í árásum á Íran

Að minnsta kosti 180 börn hafa verið drepin í loftárásum Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran að mati UNICEF, Barnahjálparsjóðs Sameinuðu þjóðanna.„Alþjóðalög eiga að vernda börn og skólastofnanir, þar eiga þau að njóta öryggis,“ segir í tilkynningu UNICEF.EPA / WAEL HAMZEHUNICEF rifjar upp í fréttatilkynningu að 168 stúlkur á aldrinum sjö til tólf ára týndu lífi þegar árás var gerð á skóla þeirra síðasta laugardag. Síðan þá hafi tólf börn verið drepin í fimm öðrum skólum víðs vegar um Íran.„Alþjóðalög eiga að vernda börn og skólastofnanir, þar eiga þau að njóta öryggis,“ segir í tilkynningunni. „Grimmdarverk stríðsátaka og ofbeldi gegn börnum hefur áhrif á fjölskyldur og samfélög kynslóðum saman,“ segir UNICEF.
UNICEF: minnst 180 börn drepin í árásum á Íran

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta